Erlent

Evrópusambandið herðir tökin á sjóræningjum

Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að herða tökin á sjóræningjum við Sómalíu.
Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að herða tökin á sjóræningjum við Sómalíu. mynd/AP
Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að herða tökin á sjóræningjum við Sómalíu.

Ákvörðunin felur í sér tveggja ára lengingu á verkefnum hersveita sambandsins við strendur landsins og fá nú herskip leyfi til að ráðast gegn skipum sjóræningjanna sem og á eldsneytisstöðvar á landi.

Nú þegar eru nokkur herskip Evrópusambandsins við strendur Austur-Afríku en þeim er ætlað vernda farmskip sem flytja neyðargögn til Sómalíu og víðar.

Sjóræningjar hafa ítrekað ráðist gegn flutningaskipunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×