Erlent

Fundu steingerðan fót af einum af forfeðrum mannkynsins

Vísindamenn hafa fundið steingerðan fót af einum af forfeðrum mannkynsins í Eþíópíu. Steingervingurinn er talinn 3,4 milljóna ára gamall.

Það sem þykir mjög spennandi við þennan fund er að fóturinn tilheyrir ekki sömu tegund mannapa og hin fræga Lucy sem hingað til hefur verið talin elsti forfaðir mannkynsins.

Þetta þýðir að fleiri en ein tegund af mannöpum hafa verið til í austurhluta Afríku fyrir þetta mörgum milljónum ára en svæðið er talið vagga mannkynsins og að þaðan hafi komið þeir mannapar sem síðan þróuðust í gegnum aldirnar upp í homo sapiens eða hinn hugsandi mann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×