Erlent

Skaut konur og börn með köldu blóði - minnsta kosti 16 látnir

Að minnsta kosti sextán manns eru látnir eftir að bandarískur hermaður réðist á tvö heimili í Afganistan og myrti íbúa þeirra. Meðal þeirra sem hermaðurinn myrti eru konur og börn. Fimm eru slasaðir eftir árásina.

Ekki er vitað hvað hermanninum gekk til en hann yfirgaf herstöð sína snemma í morgun og fór að heimilunum þar sem hann virðist hafa myrt íbúa þeirra með köldu blóði.

Bandaríski herinn hefur fordæmt árásina og viðbúnaðarstig hefur verið stóraukið í landinu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá hefur herinn varað erlenda ríkisborgara að ferðast í landinu.

Málið kemur sem reiðarslag fyrir bandaríska herinn eftir að hermenn brenndu kóraninn. Úr varð öflug mótmælabylgja í landinu. Ekki er fyrirséð hverjar afleiðingar árásarinnar verða í landinu. Hermaðurinn hefur verið handtekinn og er í haldi bandaríska hersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×