Erlent

Rúmlega áttræð kona vann 42 milljarða í lottó

Hin 81 árs gamla Louise White búsett á Rhode Island í Bandaríkjnum datt í lukkupottinn um helgina en þá vann hún risavinning í lottó eða rúmlega 336 milljónir dollara sem samsvara yfir 42 milljörðum króna.

Louise þurti að skreppa út í búð eftir ís fyrir eitt af barnabörnum sínum og ákvað að kaupa miða í PowerBall lottóinu sem síðan gaf af sér þennan vinning.

Louise er að vonum ánægð með vinninginn sem hún segist ætla að nota til að gleðja alla meðlimi fjölskyldu sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×