Erlent

Þurfti að kúka í miðri sýningu

Ótrúlega fyndið atvik kom upp á stærstu hundasýningu í heimi á dögunum þegar einn keppandinn þurfti að gera þarfir sínar í miðri keppni. Í keppninni þurftu hundarnir að klára ákveðna braut á sem bestum tíma og virtist hundurinn, Libby, vera á góðum tíma þegar hann þurfti að svara kalli náttúrunnar. Eigandinn skammaðist sín hrikalega og hlógu áhorfendur af þessu skondna atviki. Einn af aðstoðarmönnunum afhenti eigandanum bréf til að þrífa skítinn upp. En dómara ráku Libby úr keppni og fékk hann ekki að klára brautina. Þetta fyndna atvik má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×