Erlent

Dauðinn gerður ólöglegur í ítölsku þorpi

Fava vonast til þess að uppátækið eigi eftir að beina athygli yfirvalda og ráðamanna á Ítalíu að vandamáli bæjarins.
Fava vonast til þess að uppátækið eigi eftir að beina athygli yfirvalda og ráðamanna á Ítalíu að vandamáli bæjarins. mynd/AFP
Frá byrjun þessa mánaðar hefur verið ólöglegt að deyja í bænum Falciano del Massico á Ítalíu. Yfirvöld í bænum standa í deilum við nágrannaþorp um fá að nota kirkjugarðana þeirra.

Bæjarstjórinn Giulio Cesare Fava gaf fyrirskipunina undir lok síðasta mánaðar. Um 3.700 manns búa í bænum en hann staðsettur rúmum 50 kílómetrum frá Napólí.

Fava vonast til þess að uppátækið eigi eftir að beina athygli yfirvalda og ráðamanna á Ítalíu að vandamáli bæjarins.

Hann sagði AP fréttastofunni að bæjarbúar séu almennt sáttir með tilskipunina.

„Nýja reglugerðin hefur vakið mikla lukku," sagði Fava. „Því miður gátu tveir aldraðir borgarar ekki fylgt reglunni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×