Erlent

Fámennasta byggðalag Bandaríkjanna til sölu

Eini íbúinn sem eftir er í fámennasta byggðalagi Bandaríkjanna, Buford í Wyoming, hefur ákveðið að selja staðinn.

Íbúinn Don Sammons að nafni hefur rekið þarna verslun í tuttugu ár en er orðinn leiður á einverunni. Með í kaupum á Buford fylgir bensínstöð, verslun, skólabygging, verkstæði, bjálkakofi og einbýlishús.

Sammons vonast til þess að fá 100.000 dali hið minnsta fyrir staðinn eða tæplega 13 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×