Erlent

Fjölskyldur á slysstað

Fjölmargir hafa lagt blóm og myndir við grunnskólann sem börnin voru í, en þau voru flest 12 ára gömul.
Fjölmargir hafa lagt blóm og myndir við grunnskólann sem börnin voru í, en þau voru flest 12 ára gömul.
Fjölskyldur tuttugu og tveggja barna sem fórust í rútuslysi í Sviss á þriðjudagskvöld fóru í morgun á slysstað í undigöngum hraðbrautar í Valais kantónunni þar sem rútan klessti á vegg á miklum hraða.

Belgísk yfirvöld undirbúa nú að fljúga með lík barnanna heim til Belgíu en rannsóknarlögreglumenn reyna að komast að því hvað olli slysinu.

Alls létust tuttugu og átta í slysinu en um 24 börn eru slösuð, nokkur mjög alvarlega. Þetta er alvarlegasta umferðarslys í Sviss í áratugi en forsætisráðherra Belgíu hefur lýst yfir þjóðarsorg vegna atburðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×