Erlent

Fórnarlömb rútuslyssins komin heim

Frá Belgíu í dag.
Frá Belgíu í dag. mynd/AP
Lík fórnarlamba rútuslyssins í Sviss voru flutt til Belgíu í dag. Alls létust 28 í slysinu, þar af 22 börn.

Líkkisturnar voru fluttar í flugskýli og lúðrasveit belgíska hersins vottaði virðingu sína með lagi. Einnar mínútu þögn fylgdi.

Þjóðasorg hefur verið lýst yfir í Belgíu.

Enn er ekki vitað hvað olli slysinu. Samkvæmt rannsóknarmönnum í Sviss var bílstjóri rútunnar vel hvíldur.

Grunur leikur þó á að rútubílstjórinn hafi misst stjórn á rútunni þegar hann setti hljómdisk í geislaspilara rútunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×