Erlent

Áfram leitað að áhöfn Herkúlesvélarinnar

Leit heldur áfram að þeim sem fórust þegar Herkúlesvél frá norska flughernum flaug á fjall í norður Svíþjóð fyrir helgina.

Mikið brak hefur fundist en enginn af þeim fimm sem voru um borð í vélinni. Þá hefur svarti kassinn úr vélinni ekki heldur fundist.

Mikil snjókoma undanfarna tvo daga hefur sett strik í reikninginn og stöðug hætta á snjóflóðum. Því hafa sérþjálfaðir fjallahermenn verið kallaðir til ásamt leitarhundum, sem þjálfaðir hafa verið til að finna fólk sem grafið er í fönn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×