Erlent

Ákvörðun Norður Kóreumanna fagnað

Þjóðhöfðingjar víða um heim hafa fagnað þeirri ákvörðun stjórnvalda í Norður Kóreu að stöðva kjarnorkuvopnaáform sín.

Norður Kórea ætlar að hætta að auðga úran til vopnagerðar og jafnframt verður hætt við að þróa og byggja langdrægar eldflaugar til að flytja kjarnavopn. Einnig mun alþjóðlegum kjarnorkueftirlitsmönnum verða hleypt inn í landið. Í staðinn munu Bandaríkjamenn senda yfir 240.000 tonn af matvælum til Norður Kóreu.

Talsmaður Hvíta hússins segir ákvörðun Norður Kóreu skref í rétta átt og utanríkisráðuneyti Kína hefur fagnað þessari ákvörðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×