Erlent

Rauðir Krossinn aðstoðar í Homs

mynd/AP
Alþjóðaráð Rauða Krossins og Rauða hálfmánans tilkynnti í dag að samtökin hafi fengið leyfi frá yfirvöldu í Sýrlandi til að fara inn í borgina Homs.

Rauði Krossinn mun koma nauðsynlegum hjálpargögnum til íbúanna ásamt því að veita særðum borgurum læknisaðstoð.

Umsátursástand ríki nú í borginni og hafa öryggissveitir sýrlenska hersins látið sprengjum rigna yfir borgina síðustu vikur.

Vonast er til að Rauði Krossinn fái inngöngu í borgina á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×