Erlent

Hátt í 200 fórust þegar vopnabúr sprakk í loft upp í Brazzaville

Hátt í 200 fórust og hundruðir særðust þegar vopnabúr í Brazzaville höfuðborg Kongó sprakk í loft upp um helgina.

Höggbylgjan sem fylgdi í kjölfar sprengingarinnar fannst vel í borginni Kinshasa sem er handan landamæranna að Lýðveldinu Kongó.

Fjölmargir íbúar Brazzaville flúðu úr borginni eftir sprenginguna en Kongó á sér blóðuga sögu um valdarán og uppreisnir þótt þar hafi allt verið með kyrrum kjörum frá því á síðasta áratug síðustu aldrar.

Nú er komið í ljós að sennilega varð bilun í rafkerfi vopnabúrsins orsökin að sprengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×