Erlent

Fjöldi ábendinga um kosningasvik í Rússlandi

Þegar hafa borist hátt í 4.000 ábendingar um kosningasvik í rússnesku forsetakosningunum frá eftirlitsmönnum með kosningunum. Vladimir Putin vann öruggan sigur í kosningunum með 60% atkvæða og verður forseti Rússlands næstu sex árin.

Í blaðinu Politiken er greint frá ýmsum af þeim ábendingum sem komið hafa um kosningasvik. Meðal annars er greint frá Sergei Smimov sem voru boðnar 2.000 rúblur ef hann vildi fara á milli fjögurra kjörstaða og greiða Putin atkvæði sitt á þeim öllum. Sama tilboð fékk hópur fólks á veitingastað í Moskvu og þar fylgdi bílfar með í kaupunum á kjörstaðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×