Erlent

Höfuðgasleiðslan um Sínaí sprengd í loft upp

Höfuðgasleiðslan frá Egyptalandi til Ísraels og Jórdaníu, sem liggur um Sínaí eyðimörkin var sprengd upp í gærkvöldi.

Þetta er í 13. sinn frá því að Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands var hrakinn frá völdum í fyrra að leiðslan er sprengd upp. Raunar gerðist það síðast fyrir um mánuði síðan og nýlokið var við viðgerð á leiðslunni þegar sex vopnaðir menn sprengdu hana að nýju í gærkvöldi.

Mubarak gerði á sínum tíma 20 ára samning um gassölu til Ísraels en þessi samningur er þyrnir í augum margra Egypta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×