Erlent

Ítalir reiðir í garð Breta eftir að gíslabjörgun fór í vaskinn

Ítölsk stjórnvöld eru reið út í Breta vegna þess að björgun tveggja gísla í Nígeríu í gær endaði með því að þeir báðir fórust en um var að ræða Breta og Ítala.

Það var bresk sérsveit sem réðist á mannræningja þessara manna í Sokoto en aðgerðin fór í vaskinn með fyrrgreindum afleiðingum. Nokkrir af mannræningjunum féllu einnig en þeir voru taldir vera liðsmenn íslömsku öfgasamtakanna Boko Haram.

Ítalirnir eru reiðir vegna þess að ekkert samráð var haft við þá um björgunina. David Cameron forsætisráðherra Breta segir hinsvegar að björgunaraðgerðin hafi verið nauðsynleg þar sem líf gíslanna var í bráðri hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×