Erlent

Oxfam vara við hungursneyð í vesturhluta Afríku

Alþjóðasamtökin Oxfam sem berjast gegn fátækt í heiminum segja að grípa verði til bráðaaðgerða til að koma í veg fyrir mikla hungursneyð í vesturhluta Afríku.

Miklir þurrkar þar um slóðir hafa leitt til þess að 13 milljónir manna eiga hvorki til hnífs né skeiðar. Þar af séu um milljón börn á Sahel svæðinu í mikilli hættu á alvarlegri vannæringu.

Verst er ástandið í löndunum Chad, Burkina Faso, Mali, Mauritania og Niger. Oxfam hefur sett í gang söfnunarherferð sökum þess og ætlar sé að safna um 5 milljörðum króna til að standa undir matarsendingum til þessara landa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×