Erlent

Auglýsa dýrustu skemmtisiglingu sögunnar

Dýrasta skemmtisigling sögunnar er nú auglýst af hálfu bresku ferðaskrifstofunnar Six Star Cruises.

Sigling þessi kostar sem samsvarar rúmlega 170 milljónum íslenskra króna. Um er að ræða 124 daga lúxusferð með skemmtiferðaskipinu Silver Whisper.

Siglingin hefst frá Los Angeles þann 1. janúar á næsta ári og siglt verður víða um Kyrrahafið. Innifalið er í ferðinni er fjögurra nátta dvöl á Beverly Wilshere hótelinu áður en lagt verður af stað. Ferðalangarnir dvelja í lúxussvítum um borð og Michelin stjörnukokkur sér um matseldina fyrir þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×