Erlent

Meintur hryðjuverkamaður handtekinn í Kaíró

Saif al-Adel
Saif al-Adel mynd/AFP
Talið er að Saif al-Adel, einn af leiðtogum hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda, hafi verið handtekinn á alþjóðlega flugvellinum í Kaíró í Egyptalandi í dag.

Maðurinn þvertekur þó fyrir að vera hryðjuverkaleiðtoginn en viðurkennir þó að hafa verið meðlimur al-Qaeda. Saif er eftirlýstur í Bandaríkjunum vegna röð sprengjuárása á sendiráð í austur-Afríku.

Saif, sem er af egypsku bergi brotinn, annaðist trúnaðarstörf fyrir Osama Bin Laden og sá um að skipulagningu hryðjuverkaárása.

Talið er að Saif hafi verið í haldi í Íran frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í Afganistan árið 2001. Yfirvöld í Íran hafa þó aldrei viljað staðfesta þetta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×