Erlent

Öflugur jarðskjálfti við Filippseyjar

Öflugur jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig á Richter skók Filippseyjar í nótt. Upptök skjálftans voru á hafsbotni um 70 kílómetra undan ströndum eyjarinnar Negros.

Ekki þótti ástæðan til að gefa út flóðbylgjuaðvörun vegna skjálftans og samkvæmt fyrstu fréttum frá Filippseyjum virðist tjón af völdum hans hafa verið minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×