Erlent

Leyniþjónusta Rússa stöðvar morðtilræði gegn Putin

Leyniþjónusta Rússlands hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa skipulagt morðtilræði gegn Vladímír Pútín forsætisráðherra landsins.

Í rússneskum fjölmiðlum er haft eftir leyniþjónustunni að mennirnir tveir hafi játað að vera á snærum skæruliðaforingja í Tjetjeníu. Þeir hafi verið búnir að skipuleggja tilræðið og ætluðu sér að láta til skarar skríða gegn Pútin í Moskvu að loknum forsetakosningunum í byrjun mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×