Erlent

Ár liðið frá náttúruhamförum í Japan

Eyðileggingin var hrikaleg.
Eyðileggingin var hrikaleg.
Í dag er eitt ár er liðið því að jarðskjálfti upp á 9 á richter skók japanska jörð og flóðbylgja skall á landinu með þeim afleiðingum að um tuttugu þúsund létu lífið og mörg þúsund neyddust til að yfirgefa heimili sín.

Japanir minntust fórnarlambanna og þeirra sem lifðu hamfarirnar af með einnar mínútu þögn í morgun en minningarathafnir verða haldnar víða um heim í dag og næstu daga.

Fjölmenni var við minningarathöfn í nágrenni við japönsku borgina Fukushima í morgun þar sem viðstaddir kveiktu á kertum og rituðu falleg orð um hina látnu. Bænastund verður haldin í Grensáskirkju klukkan tvö í dag og þangað eru allir velkomnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×