Defoe gefst ekki upp þrátt fyrir erfitt ár Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. maí 2011 09:30 Það hefur lítið gengið upp hjá Defoe í ár.
Jermain Defoe, framherji Tottenham, viðurkennir að tímabilið hafi verið mjög erfitt fyrir sig persónulega enda fékk hann að minna að spila í vetur en hann er vanur. Defoe skoraði aðeins fjögur mörk í úrvalsdeildinni í vetur og ein ástæðan fyrir því er lítill spiltími. "Þetta hefur tekið á. Ég er metnaðarfullur leikmaður sem vill spila alla leiki og skora. Ég hef alltaf verið þannig og ég trúi því að ég muni skora í öllum leikjum. Þess vegna hefur þetta tekið svona mikið á," sagði Defoe. Framherjinn hefur þó ekki í hyggju að yfirgefa félagið heldur ætlar hann að berjast fyrir sínu. Komið þið sæl. Á miðvikudaginn kl. 10 ætlar Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingur 365, að fara yfir nýju fjölmiðlalögin með okkur og þá sérstaklega breytingar á ákvæðum um tjáningarfrelsi, ábyrgðarreglur og ritstjórnarlegt sjálfstæði. Í framhaldinu ætla ég svo að tala um breytingar sem við munum þurfa að gera á siðareglunum okkar vegna nýju laganna. Það er vonum seinna að við komum reglulegum fagmálafundum, sem um var rætt í desember, í farveg. Það helgast meðal annars af því að okkur hefur gengið illa að finna rétta húsnæðið fyrir þá, en mötuneytið var ekki hentugur vettvangur. Nú er búið að gera ágæta fundaraðstöðu fyrir stóra hópa á 4. hæð í norðurhúsinu og þá er um að gera að við nýtum okkur það. Stöð 2, Bylgjan og Vísir halda sína fagmálafundi á kvöldin og hafa þá 2-3 tíma. Hjá okkur eru alltaf einhverjir að vinna á kvöldin, þannig að ég held að það sé betri lausn að hafa fundina á venjulegum vinnutíma, fyrir hádegi á þriðjudögum og ekki lengri en klukkutíma, en halda þá oftar. Þessi er boðaður á miðvikudegi af því að málshefjandinn komst ekki á þriðjudaginn. Svo höldum við áfram á þriðjudag eftir hálfan mánuð, þ.e. 31. maí. Þá ætlar Magnús Teitsson að lesa yfir hausamótunum á okkur um málfar, stafsetningu, yfirlestur frétta og fleira af því tagi. Málfarsfyrirlestrar verða haldnir reglulega. Í framhaldinu verða meðal annars fyrirlestrar um bætta samvinnu blaðamanna, umbrotsfólks og ljósmyndara, ábendingar um fyrirsagnagerð, stutt námskeið í Outlook-kerfinu, Saxo-upprifjun og fleiri innlegg sem taka meðal annars mið af ábendingum og óskum sem komu fram í starfsmannasamtölunum. Ef þið eruð með góða hugmynd og jafnvel til í að vera sjálf málshefjendur – til dæmis ef eitthvað fer í taugarnar á ykkur eða ef þið hafið lært eitthvað nýtt og sniðugt – þá er um að gera að koma því á framfæri. Það er að sjálfsögðu skyldumæting á fundina nema gildar ástæður hamli því að þið getið mætt. Kveðja, ÓÞS
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira