Átta skólar þurftu að vísa nemum frá 28. júní 2011 04:00 Flestir nemendur vildu komast í Verzlunarskóla Íslands þetta árið, en 336 munu hefja þar nám í haust. Mynd/Valli
339 unglingar sem kláruðu tíunda bekk í vor fengu ekki skólavist í þeim framhaldsskóla sem þeir helst vildu. Átta skólar þurftu að vísa þessum nemendum frá og hafa þeir fengið skólavist í öðrum skólum. Þetta kemur fram í tölum sem Fréttablaðið fékk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Innritun nýnema er lokið og hefur öllum 4.209 unglingunum sem luku tíunda bekk í vor og sóttu um framhaldsskóla verið komið fyrir í skólum. Nemendum býðst sem fyrr að sækja um aðalskóla og annan til vara. Verzlunarskóli Íslands er áfram vinsælasti skóli landsins, en 466 nemar völdu skólann sem sitt fyrsta val í framhaldsskóla. Verzlunarskólinn hefur pláss fyrir 336 nýnema og þurftu því 130 nemendur frá að hverfa. Menntaskólinn við Hamrahlíð er næstvinsælastur, en þangað vildu 327 nemar. Pláss er fyrir 225 nýnema og skólinn þurfti því að vísa 102 frá. Alls sóttu 247 nemar um bæði í Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum í Reykjavík. MR tekur inn 250 og gátu því þrír nemendur sem völdu skólann sem annað val komist inn, en Kvennaskólinn tekur 210 og þurfti að vísa 37 frá. Fjölbrautaskóli Suðurlands, Flensborgarskólinn, Menntaskólinn við Sund, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Framhaldsskólinn á Laugum þurftu einnig að vísa nemendum frá sem höfðu haft skólann sem fyrsta val. Þeir þurftu að hafna á bilinu fjórum til 22 nemendum. Aðrir skólar gátu tekið við einhverjum fjölda nemenda sem ekki komust inn í þann skóla sem þeir helst vildu. Alls sóttu 4.209 unglingar sem útskrifuðust úr grunnskólum landsins í vor um nám í framhaldsskólum. Það eru rúmlega 96 prósent allra sem útskrifuðust. Hlutfallið er svipað og í fyrra. Um 98 prósent komust inn í annan þeirra skóla sem sótt var um, þar af 87 prósent í þann skóla sem var fyrsta val. Skólarnir þurftu að taka frá fjörutíu prósent plássa sinna fyrir nemendur úr skólum í nágrenni þeirra og veita þeim forgang. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent