Enski boltinn

Gerrard: Sjöunda sætið óásættanlegt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Steven Gerrard vill fá meira úr liði Liverpool á tímabilinu og segir að það sé óásættanlegt fyrir félagið að lenda í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Liverpool varð í sjöunda sæti á síðasta tímabili en liðinu hefur gengið illa í vetur. Félagið hefur bæði skipt um eigendur og knattspyrnustjóra síðan að tímabilið hófst í sumar.

Liverpool vann í gær 1-0 sigur á Fulham og er nú í sjöunda sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið síðustu tvo leiki sína og mætir næst Stoke á miðvikudaginn.

„Við viljum meira en sjöunda sætið. Það er ekki ásættanlegt hjá þessu félagi," sagði Gerrard við enska fjölmiðla.

„Við erum þó ánægðir með að vera komnir upp í sjöunda sætið nú miðað við stöðu liðsins fyrir fáeinum vikum."

„En við mætum Stoke næst og það er mikilvægt að við höldum áfram á þessari braut. Við þurfum þrjú stig úr þeim leik sem mun vonandi duga til þess að komast ofar í töflunni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×