Liverpool vann tíu menn Arsenal - Arsenal á enn eftir að skora Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2011 10:06 Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool fagnaði sínum fyrsta sigri á Emirates-leikvanginum og jafnframt sínum fyrsta útisigri á Arsenal í ellefu ár þegar liðið vann 2-0 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Luis Suárez kom inn á sem varamaður eftir að Liverpool varð manni fleiri á 70. mínútu og átti mikinn þátt í báðum mörkum liðsins. Fyrra markið var klaufalega sjálfsmark þar sem Luis Suárez var allt í öllu í undirbúningnum og Úrúgvæmaðurinn skoraði síðan seinna markið sjálfur eftir sendingu frá Raúl Meireles sem hafði líka komið inn á sem varamaður. Tveir ungir leikmenn Arsenal vilja örugglega gleyma þessum leik sem fyrst, Emmanuel Frimpong, sem var rekinn útaf og Ignasi Miquel, sem skaut boltanum í samherja og í eigið mark. Arsenal-menn eru því bara búnir að skora í eigið mark á fyrstu 180 mínútum sínum á nýrri leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið áttu sína spretti í fyrri hálfleiknum en það skilaði sér ekki í mörkum. Samir Nasri var í byrjunarliðinu og var mjög nálægt því að koma sínum mönnum í 1-0 í fyrri hálfleiknum. Arsenal-liðið virtist vera komið í gang um miðjan seinni hálfleik þegar þeir misstu hinn unga Emmanuel Frimpong af velli með rautt spjald. Hann fékk þá sitt annað gula spjald og Arsenal lék því síðustu 20 mínútur leiksins manni færri. Luis Suárez kom inn á sem varamaður strax eftir að Liverpool varð manni fleiri og hann átti mikinn þátt í fyrsta markinu sem kom á 77. mínútu eftir samspil Suárez og annars varamanns, Raúl Meireles. Ignasi Miquel ætlaði að hreinsa boltann frá en skaut þess í stað í Aaron Ramsey og þaðan fór boltinn í eigið mark. Markið átti reyndar ekki að vera dæmt gilt því Suárez var rangstæður í undirbúningi þess. Luis Suárez innsiglaði síðan sigurinn á 89. mínútu eftir laglega sókn og sendingu frá Raúl Meireles. Hér fyrir neðan má sjá allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sjá meira