Umfjöllun: Eyjamenn jöfnuðu í uppbótartíma í toppslagnum Kolbeinn Tumi Daðason á KR-velli skrifar 25. ágúst 2011 11:12 Mynd/Anton
KR og ÍBV skildu jöfn 2-2 í toppslag Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í Vesturbænum í kvöld. Allt stefndi í 2-1 sigur heimamanna en varamaðurinn Aaron Spear jafnaði metin í uppbótartíma. Það var ekki mikið um gæði á KR-vellinum í kvöld en þeim meira um baráttu. Guðjón Baldvinsson kom heimamönnum yfir um miðjan fyrri hálfleikinn eftir að Albert Sævarsson missti skot Baldurs Sigurðssonar klaufalega frá sér. Fram að markinu höfðu færi verið af skornum skammti en KR-ingar sterkari aðilinn ef eitthvað var. Hvorugt liðið var líklegt til þess að bæta við mörkum í hálfleiknum og heimamenn leiddu í leikhléi. Snemma í síðari hálfleik skoraði Tryggvi Guðmundsson eitt af mörkum sumarsins úr aukaspyrnu af löngu færi. KR-ingar voru allt annað en sáttir við að aukaspyrnan var dæmd og Baldur Sigurðsson, hinn brotlegi, fórnaði höndum. Allir gátu hins vegar verið sammála um fegurðina í marki Tryggva sem límdi boltann upp í vinkilinn. Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, átti aldrei möguleika. Staðan orðin jöfn og í kjölfarið voru Eyjamenn skeinuhættir og virkuðu líklegri til þess að bæta við mörkum. KR-ingar virkuðu þreyttir en mikið hefur verið rætt um mikið álag á leikmenn liðsins en kvarnast hefur úr leikmannahópnum að undanförnu vegna meiðsla. KR-ingar komust yfir stundarfjórðungi fyrir leikslok með marki upp úr þurru. Egill Jónsson sendi frábæra sendingu inn á teiginn á Kjartan sem lagði boltann út í teiginn. Björn Jónsson skauta að marki, Albert varði frábærlega en Guðjón Baldvinsson hirti frákastið og skoraði af stuttu færi. Allt ætlaði um koll að keyra í Vesturbænum. Eyjamönnum gekk illa að byggja upp sóknir í kjölfarið og allt stefndi í risaskref KR-inga í átt að titlinum. Í viðbótartíma jafnaði varamaðurinn Aaron Spear með skoti af stuttu færi eftir undirbúning annars varamanns, Kjartans Guðjónssonar. Aftur voru KR-ingar ósáttir við dómgæsluna en þeir töldu brotið á Grétari varnarmanni þeirra í aðdraganda marksins. Þá voru þeir einnig ósáttir við að dæmt hafði verið á Guðjón Baldvinsson á hinum enda vallarins. Eyjamenn fögnuðu jöfnunarmarki sínu vel og andartökum síðar flautaði Þóroddur Hjaltalín til leiksloka. Liðin skipta með sér stigunum í skemmtilegum baráttuleik í Vesturbænum. KR heldur tveggja stiga forskoti á Eyjamenn á toppi deildarinnar. Liðið á ennfremur leik til góða á önnur lið í deildinni. Liðin eiga eftir að mætast 18. september í Eyjum og geta stuðningsmenn beggja liða byrjað að hlakka til stórslagsins. Hér fyrir neðan má sjá textalýsingu frá blaðamanni Vísis á leiknum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Dagskráin: Super Bowl og stórleikur Liverpool og Manchester City Sport Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira