Herforingjar skipta um stjórn í Egyptalandi 23. nóvember 2011 02:00 Mótmæli á Tahrir-torgi Mótmælendum þykir herforingjastjórnin hafa brugðist. nordicphotos/AFP
Tugir þúsunda manna flykktust á Tahrir-torg í Kaíró í gær til að krefjast afsagnar herforingjastjórnarinnar. Herinn tók harkalega á mótmælendum og hafa nú tugir manna látist og hundruð manna særst. Herforingjarnir sem fara með völd í Egyptalandi hafa fallist á afsögn bráðabirgðastjórnarinnar sem stjórnað hefur í umboði þeirra. Jafnframt boða herforingjarnir stofnun nýrrar „þjóðbjörgunarstjórnar“ og lofa því að um mitt næsta ár láti þeir af völdum og lýðræðislega kjörin stjórnvöld taki við. Þegar herforingjastjórnin tók við af Mubarak í febrúar naut hún stuðnings mótmælenda og lofaði þingkosningum eftir hálft ár. Þeim var frestað en eiga nú að hefjast í næstu viku og standa í áföngum fram yfir áramót. Forsetakosningar átti að koma í kjölfarið, en þeim hafði ítrekað verið frestað og varla þóttu horfur á að þær yrðu fyrr en árið 2013, þangað til herforingjarnir sögðu í gær að stjórnarskipti yrðu 1. júlí á næsta ári. Undanfarnar vikur hefur æ fleiri Egyptum þótt herforingjastjórnin hafa brugðist og vera farin að draga umbætur úr hófi. Harkan sem beitt hefur verið á mótmælendur síðustu daga varð síðan til þess að mótmælin mögnuðust enn frekar.- gb
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Sjá meira