Leonardo: Berbatov ekki til sölu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2011 22:45 Berbatov og Michael Owen þurfa að deila spiltíma hjá Manchester United. Nordic Photos/Getty Images
Brasilíumaðurinn Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála hjá Paris Saint Germain, segir Dimitar Berbatov, leikmann Manchester United, ekki til sölu. Það hafi hann fengið að heyra í símtali en á hinum enda línunnar var Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United. PSG vann sinn fyrsta leik í frönsku deildinni í kvöld þegar liðið lagði Valenciennes á heimavelli 2-1. Félagið hefur verið iðið við kolann á leikmannamarkaðnum undanfarnar vikur og var Leonardo spurður út í möguleg kaup á Dimitar Berbatov að leiknum loknum. „Ég spjallaði við Ferguson í síma og hann sagðist treysta á Berbatov, hann væri ekki til sölu," sagði Leonardo við France Football. Berbatov, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, hefur verið orðaður við brotthvarf frá félaginu. Hann virðist hafa færst enn aftar í goggunarröðinni hjá United en Englendingurinn Danny Welbeck hefur spilað fleiri mínútur en Búlgarinn í undanförnum leikjum. PSG hefur valdið vonbrigðum í upphafi tímabils sérstaklega í ljósi fjölmargra nýrra leikmanna. Nýjasta stjarnan, Argentínumaðurinn Javier Pastore, spilaði síðasta hálftímann fyrir PSG í kvöld en þetta var fyrsti leikur kappans í búningi Parísarliðsins.
Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira