Lýðflokkurinn með meirihluta 21. nóvember 2011 02:00 Stuðningsmenn Lýðflokksins fögnuðu sigri við höfuðstöðvar flokksins í Madríd í gærkvöldi og veifuðu bláum og hvítum fána flokksins. Fréttablaðið/AP
Lýðflokkurinn fékk hreinan meirihluta þingmanna í kosningunum sem fram fóru á Spáni í gær samkvæmt niðurstöðum þegar nærri tvö af hverjum þremur atkvæðum höfðu verið talin í gærkvöldi. Verði það niðurstaðan er ríkisstjórn Sósíalistaflokksins, sem stýrt hefur landinu síðustu tvö kjörtímabil, fallin. Eftir að 64 prósent atkvæða höfðu verið talin var Lýðflokkurinn, sem er flokkur hægrimanna, með um 44 prósent atkvæða og 187 þingsæti af 350 í neðri deild spænska þingsins. Sósíalistaflokkurinn var með 29 prósenta fylgi og 110 þingsæti. Kosningabaráttan snerist að langmestu leyti um efnahagsmálin. Atvinnuleysi á Spáni er nú um 21,5 prósent, og ótti við að landið fylgi Grikklandi í greiðsluþrot fer vaxandi. Stuðningsmenn Lýðflokksins söfnuðust saman við höfuðstöðvar flokksins í gærkvöldi, fullvissir um að flokkurinn hefði unnið stórsigur í kosningunum. Fólkið veifaði spænska fánanum og bláum og hvítum fána Lýðflokksins. „Þetta er það sem landið þarf á að halda núna,“ sagði David Cordero, einn stuðningsmanna flokksins, sem fagnaði úrslitunum með hópi stuðningsmanna Lýðflokksins.- bj
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Sjá meira