Stjórnarmyndun gengur ekkert 19. nóvember 2011 06:00 Wouter Beke
Meira en ellefu stjórnmálamenn hafa reynt að koma saman ríkisstjórn í Belgíu frá því síðast var kosið til þings. Þær tilraunir hafa engum árangri skilað og landið hefur því verið án ríkisstjórnar í meira en fimm hundruð daga. Að vísu er bráðabirgðastjórn starfandi í landinu, en hún hefur takmarkað umboð og á til dæmis erfitt með að koma í gegn nauðsynlegum efnahagsumbótum, sem Evrópusambandið krefst að verði orðnar að veruleika fyrir miðjan næsta mánuð. „Við erum enn að reyna,“ sagði Wouter Beke, leiðtogi Flæmska kristilega demókrataflokksins, eftir að leiðtogar sósíalista, frjálslyndra og kristilegra demókrata höfðu varið enn einni nóttinni í fundarhöld sem litlum árangri skiluðu. Samkomulag strandar á ágreiningi flæmskumælandi og frönskumælandi stjórnmálamanna, sem deila um það hvernig völdin skuli skiptast milli héraða landsins og miðstjórnar í Brussel. Jafnvel þótt gróft samkomulag hafi tekist í síðasta mánuði um aukin völd heim í héröðin hefur útfærslan dregist á langinn. Nokkur bjartsýni ríkir þó um að brátt fari að sjá fyrir endann á þessum langdregnu stjórnarmyndunarviðræðum.- gb
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira