Umhverfishættur ógna lífskjaraþróun 3. nóvember 2011 13:30 Helen Clark, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Helle Thorning-Schmidt, sem er nýtekin við forsætisráðherraembætti Danmerkur, og Jeni Klugman, aðalhöfundur skýrslunnar í ár.nordicphotos/AFP „
Sjálfbærni er ekki eingöngu og ekki einu sinni aðallega umhverfismál,“ sagði Helen Clark, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, þegar hún kynnti nýjustu þróunarskýrslu stofnunarinnar í Kaupmannahöfn í gær. Þetta árið beindu höfundar skýrslunnar sjónum sínum að sjálfbærni lífskjara okkar og skoðuðu hvernig ágengni mannkyns gagnvart náttúrunni getur bæði dregið úr möguleikanum á bættum lífskjörum í framtíðinni og aukið ójöfnuð. Um sjálfbærni sagði Clark: „Hún snýst í aðalatriðum um það hvernig við kjósum að lifa lífi okkar, í fullri vitund um að allt sem við gerum hefur afleiðingar fyrir þá sjö milljarða manna sem búa hér nú, og ennfremur fyrir þá milljarða sem koma á eftir okkur næstu aldirnar.“ Þróunarskýrslur Sameinuðu þjóðanna hafa nú verið gefnar út árlega í meira en tvo áratugi. Í þeim er ekki eingöngu lagður efnahagslegur mælikvarði á lífskjör jarðarbúa, heldur eru lífslíkur og menntun tekin með í reikninginn í von um að endurspegla með því betur raunveruleg lífskjör fólks í löndum jarðar. Skýrslur þessar sýna að undanfarna fjóra áratugi hafa lífskjör þeirra ríkja, sem eru í neðsta fjórðungi listans, batnað um heil 82 prósent. Þetta er tvisvar sinnum meiri bati en meðaltal allra ríkja listans. „Ef hraði framfaranna síðustu 40 ár heldur áfram næstu 40 árin, þá mun yfirgnæfandi meirihluti allra landanna hafa náð því lífskjarastigi árið 2050 sem jafnast á við eða er betra en þau ríki ein njóta, sem nú eru í efsta fjórðungi lífskjaralistans,“ segir í skýrslunni. Þetta verður að teljast ótrúlegur árangur, en í skýrslunni er bent á að umhverfishættur geta hægt verulega á þessari þróun. Einkum eru það fátækari löndin sem verða fyrir mestu tjóni af völdum þurrka, flóða, loft- og vatnsmengunar og annarra hörmunga sem loftslagsbreytingar geta valdið. Ísland er í fjórtánda sæti á listanum þetta árið, var í sautjánda sæti í fyrra en hafði árum saman verið í hópi allra efstu ríkjanna á listanum. Ísland er engu að síður enn í hópi þeirra landa sem bestu lífskjaranna njóta. Noregur, Ástralía og Holland eru í þremur efstu sætum listans, en nokkru fyrir neðan Ísland eru til dæmis Danmörk, Austurríki, Frakkland og Finnland. Öll tíu neðstu sætin skipa Afríkulönd sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira