Erlent

Vilja skilgreina fátæktarmörk

Þrátt fyrir að almenn velmegun sé í Danmörku, hyggjast stjórnvöld kortleggja fátæktarvandann.
NordicPhotos/AFP
Þrátt fyrir að almenn velmegun sé í Danmörku, hyggjast stjórnvöld kortleggja fátæktarvandann. NordicPhotos/AFP
Stjórnvöld í Danmörku stefna að því að skilgreina fátæktarmörk þar í landi og mun niðurstaða liggja fyrir á næsta ári. Nokkur umræða hefur skapast um fátækt í Danmörku þar sem deilt er um hvort eigi að einblína á aðstæður innanlands eða setja þær í samanburð við fátækt á heimsvísu.

Talsmaður Róttæka flokksins, sem er einn af stjórnarflokkunum, segir við Berlingske að ákvarða þurfi nauðsynlegar ráðstöfunartekjur. Með það að leiðarljósi megi fara að vinna á fátækt sem sé raunverulegt vandamál í Danmörku. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×