Óvíst hvort Gylfi Einarsson getur spilað meira með Fylki á tímabilinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. ágúst 2011 07:00 Gylfi hefur verið mikilvægur Fylkisliðinu á tímabilinu. fréttablaðið/valli
Gylfi Einarsson hefur lítið spilað með Fylki að undanförnu en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða. Fylkismenn hafa verið í frjálsu falli í Pepsi-deildinni en þeir hafa verið duglegir að missa menn í leikbönn og meiðsli. Þar að auki fór Andrés Már Jóhannesson utan í atvinnumennsku. Gylfa er sárt saknað á Fylkismiðjunni en hann sneri aftur í Árbæinn úr atvinnumennskunni fyrir tímabilið. Fylkir hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum í Pepsi-deild karla. „Í síðustu 3-4 leikjum hef ég verið á annarri löppinni og þarf einfaldlega að hvíla mig í bili,“ sagði Gylfi við Fréttablaðið í gær. „Ég hef meira að segja átt erfitt með gang eftir leiki. Það er ekki sniðugt og því ætla ég aðeins að bíða og sjá til.“ Gylfi hefur verið að glíma við meiðsli í mjöðm undanfarin ár og segir að meiðslin nú séu ekki ný af nálinni. „Þetta er bara meira af því sama. Ég hef bara verið að þrjóskast áfram. Þetta er einfaldlega slit og ég er með lítið brjósk eftir. Ég er orðinn mjög stífur og kemst mjög stutt í hverri hreyfingu. Ég næ ekki að teygja mig eins vel og ég ætti að geta í allar áttir og má líkja þessu við kylfing sem getur ekki sveiflað kylfunni eðlilega.“ Hann neitar því ekki að hafa íhugað að hætta alfarið knattspyrnuiðkun. „Já, auðvitað hef ég íhugað það en ég vil ekki gefast upp alveg strax. Maður verður jú líka að vera skynsamur og rústa hreinlega ekki líkamanum.“ Gylfi segist því einfaldlega ekki vita hvað taki við hjá sér. „Þetta er bara pattstaða eins og er. Ég hef reynt að halda mér í æfingu í rólegheitum en samt á mjög rólegum hraða.“ Hann hefur reynt að leggja sitt af mörkum til Fylkisliðsins með öðrum hætti. „Ég hef verið með sóknarmennina á séræfingum að undanförnu og reynt að hjálpa til þannig. Það hefur verið gaman,“ sagði Gylfi en hann hefur þó ekki í hyggju að mennta sig sem knattspyrnuþjálfara. „Þó maður viti aldrei þá heillar þetta mig ekki í augnablikinu.“ Gylfi spilaði í fyrstu ellefu deildarleikjum Fylkis á tímabilinu en hefur misst af þremur af síðustu fimm. Liðið er í sjöunda sæti deildarinnar með nítján stig.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik Sjá meira