Óeirðir breiðast út fyrir höfuðborgina 9. ágúst 2011 06:30 Óeirðirnar breiddust út um borgina í gær og var meðal annars kveikt í þessari verslun í Croydon. fréttablaðið/ap
Óeirðir halda enn áfram í London og hafa breiðst út um borgina. Meira en tvö hundruð manns hafa verið handteknir vegna óeirðanna og 35 lögreglumenn eru særðir. Óeirðirnar sem hófust í Tottenham á laugardagskvöld hafa breiðst hratt út og lenti lögreglan í átökum í mörgum hverfum víða um borgina í gærkvöldi. Í Hackney í Austur-London urðu óeirðirnar einna mestar. Kveikt var í fjölda húsa og bíla víða um borgina auk þess sem brotist var inn í fjölmargar verslanir. Óeirðirnar breiddust til Lewisham og Peckham í suðurhluta borgarinnar og að lokum til Croydon. Þar voru stór hús alelda í gærkvöldi, meðal annars húsgagnaverslun sem var þekkt kennileiti á staðnum. Keyrt var á þrjá lögreglumenn aðfaranótt mánudags þegar þeir reyndu að handtaka ungmenni sem höfðu brotist inn í verslun í norðausturhluta London. Í gærmorgun náðu óeirðirnar stuttlega inn á Oxford Circus í miðborginni. Þá hófust óeirðir í borginni Birmingham í gær, en borgin er sú næstfjölmennasta í landinu utan London. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, flaug í gærkvöldi heim úr fríi á Ítalíu. Hann mun funda með innanríkisráðherranum Theresu May og lögreglustjóranum Tim Godwin í dag. May kom einnig snemma úr sumarfríi í gær til að hitta lögregluyfirvöld í London. Hún fordæmdi óeirðirnar og sagði þær óásættanlegar. Godwin hefur brýnt fyrir fólki að rýma götur og gefa lögreglumönnum rými til að athafna sig. Ken Livingstone, fyrrverandi borgarstjóri í London, sagði í gærkvöldi að ríkisstjórnin gerði sér ekki grein fyrir mikilli óánægju breskra ungmenna sem séu ekki bjartsýn á framtíðina. Þá sagði hann að lögreglumenn hefðu lengi varað við því að svona ástand gæti skapast. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira