Bandarísk yfirvöld lofa samstarfi 19. nóvember 2011 07:00 Aung San Suu Kyi ætlar að bjóða fram í næstu kosningum. nordicphotos/AFP
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fer til Búrma innan skamms að hitta leiðtoga herforingastjórnarinnar í von um að tryggja þar frekari þróun í lýðræðisátt, nú þegar „vottur af framförum“ hefur gert vart við sig, eins og Barack Obama Bandaríkjaforseti orðar það. Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, ákvað í gær að taka boði herforingjastjórnarinnar um að skrá flokk sinn, Lýðræðishreyfinguna, sem löggildan stjórnmálaflokk á ný og bjóða fram í næstu kosningum. Flokkurinn tók ekki þátt í þingkosningum á síðasta ári, vegna þess að hann treysti ekki herforingjastjórninni til að tryggja að kosningarnar yrðu sanngjarnar. Lýðræðishreyfingin vann stórsigur í þingkosningum árið 1990, en herforingjastjórnin tók ekki mark á því og setti Suu Kyi í stofufangelsi. Henni var ekki endanlega sleppt úr stofufangelsinu fyrr en að loknum þingkosningunum á síðasta ári, þegar herforingjastjórnin hafði tryggt sér áframhaldandi völd. „Ef Búrma heldur áfram á braut lýðræðisumbóta getur landið endurnýjað samskipti sín við Bandaríkin,“ sagði Obama á leiðtogafundi Suðaustur-Asíuríkja, sem haldinn er á Indónesíu.- gb
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Sjá meira