ESB rannsaki aðstæður í Tíbet 20. desember 2011 06:00 Dalai lama
Kínversk stjórnvöld hafa þvertekið fyrir að hleypa eftirlitsfólki frá Evrópusambandinu til Tíbet til að kynna sér aðstæður þar. Tilefni þessa er að á dögunum hvatti Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, sem heyra undir Kína, Cathrine Ashton, utanríkismálastjóra ESB, til þess að senda fólk á vettvang. EUobserver hefur eftir Dalai Lama að ESB gæti veitt Kína mikið aðhald með slíkum ferðum. „Ef Kína hafnar hins vegar slíkum sendinefndum getur ESB vakið athygli á málinu á alþjóðavettvangi, meðal annars fyrir mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.“ Kínverjum sé umhugað um orðspor sitt og geti því ekki komist hjá frelsis- og lýðræðisumbótum. Kínverski landsstjórinn í Tíbet, Zhu Weiqun, sem var í Brussel í vikunni, sagði hins vegar að Kína væri fullvalda ríki sem hefði fulla stjórn á innanríkismálum sínum. „Ég held ekki að íhlutun erlendra aðila yrði uppbyggileg,“ sagði hann við EUobserver. „Það gæti þvert á móti leitt til aukins óróa og jafnvel stríðs.“ Zhu bætti því við að hann skildi ekki hví ESB væri að skipta sér af innanríkismálum í Kína. Samskipti milli ESB og Kína séu sérstaklega mikilvæg nú, í ljósi skuldavanda ESB-ríkja. - þj
Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Fleiri fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Sjá meira