Bolton hafði betur í botnslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. desember 2011 15:42 Þessi stuðningsmaður Blackburn grét í leikslok. Nordic Photos / Getty
Steve Kean er kominn með lið sitt aftur í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 tap fyrir Bolton á heimavelli í kvöld. Grétar Rafn Steinsson var aftur valinn í byrjunarlið Bolton eftir að hafa verið fyrst og fremst notaður sem varamaður að undanförnu. Hann nýtti tækifærið vel og Owen Coyle, stjóri liðsins, getur andað léttar eftir að hafa fengið þrjú afar dýrmæt stig í botnbaráttunni. Bolton komst með sigrinum upp úr fallsæti og er nú með tólf stig. Blackburn situr eftir í því neðsta með tíu stig og fátt virðist geta komið í veg fyrir að eigendur liðsins muni loksins fara að kröfum stuðningsmanna Blackburn og reka Steve Kean úr starfi knattspyrnustjóra. Stuðningsmenn liðsins voru afar háværir í kvöld og kröfðust þess að Kean yrði rekinn. Þeir eru margir ekki heldur ánægðir með eigendurnar, fyrirtækið Venky's, og vilja helst að þeir haldi sömuleiðis á brott. Þeir púuðu svo duglega á sína menn eftir að flautað var til leiksloka. Mark Davies og Nigel Reo-Coker skoruðu bæði mörk Bolton í fyrri hálfleik og var varnarleikur Blackburn skelfilegur í bæði skiptin. Yakubu náði að minnka muninn um miðbik síðari hálfleiksins en nær komust heimamenn ekki. Þá mættust nýliðar Wolves og Norwich einnig í kvöld og skildu jöfn, 2-2. Norwich komst tvívegis yfir með mörkum Andrew Surman og Simeon Jackson en þeir Sylvan Ebanks-Blake og Roland Zubar skoruðu mörk Úlfanna. Það síðara kom átta mínútum fyrir leikslok. Norwich er í góðum málum í níunda sæti deildarinnar með 21 stig en Wolves er í því sextánda með fimmtán.
Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira