Abramovich vill flytja Chelsea frá Brúnni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. október 2011 09:30 Roman Abramovich, eigandi Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Enskir fjölmiðlar fjalla mikið um áætlanir Roman Abramovic, eiganda Chelsea, um að flytja heimavöll félagsins frá Stamford Bridge og byggja nýjan leikvang fyrir félagið. Abramovich hefur lengi velt fyrir sér möguleikum að koma fleiri áhorfendum fyrir á heimaleikjum Chelsea, annað hvort með því að byggja við Stamford Bridge eða byggja einfaldlega nýjan leikvang. Chelsea hefur verið á Stamford Bridge í 106 ár en Abramovich virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að besti kosturinn sé að byggja nýjan leikvang sem gerir ráð fyrir 60 þúsund áhorfendum í sæti. Stamford Bridge tekur 41 þúsund áhorfendur en munurinn gæti skilað félaginu tekjuaukningu upp á 50 milljónir punda ár hvert. Vandamál Abramovich er hins vegar að hann á ekki Stamford Bridge. Völlurinn sjálfur og stúkurnar eru í eigu eignarhaldsfélags sem þúsundir stuðningsmanna félagsins sameinuðust um að setja á laggirnar fyrir fjórtán árum síðan - einmitt til að sporna við því að hægt væri að selja félagið. Hver hlutur kostaði stuðningsmennina 100 pund á sínum tíma en áhvílandi skuldir eru í dag 8,5 milljónir punda. Abramovich hefur boðist til að greiða niður skuldirnar og borga þar að auki 100 pund fyrir hvern hlut - um 1,5 milljón punda samtals. Stuðningsmennirnir myndu því ekkert græða á sölunni en atkvæði verða greidd um hana þann 27. október næstkomandi. Nýi leikvangurinn yrði í næsta nágrenni við Stamford Bridge í Lundúnum.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira