Siðlausar og ólöglegar aðgerðir stjórnvalda í Sýrlandi 10. júní 2011 21:00 Erdogan forsætisráðherra Tyrklands segir að tekið verði við öllu flóttafólki frá Sýrlandi. Mynd/AP
Fjöldi fólks hefur flúið frá Sýrlandi til Tyrklands frá því á miðvikudagskvöld. Óttast er að árás á borgina Jisr al-Shughour sé yfirvofandi. Stjórnvöld segja að þar hafi vopnaðir hópar uppreisnarmanna drepið yfir 120 öryggissveitarmenn. Sjónarvottar hafa sagt að tugir þúsunda hermanna haldi sig nú í nálægum bæjum í héraðinu Idlib og að fjöldi skriðdreka hafi nánast umkringt Jisr al-Shughour. Tyrknesk yfirvöld segja að yfir 2.500 manns hafi flúið til landsins frá Sýrlandi. Settar hafa verið upp flóttamannabúðir fyrir fimm þúsund manns í bænum Yayladagi og áætlað er að reisa aðrar í nálægum bæ. Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, segir að flóttafólki verði áfram hleypt inn í landið. Hann hvatti þó sýrlensk stjórnvöld til þess að gera þær breytingar sem mótmælendur vilji, til þess að koma á ró. Embættismenn í Sýrlandi hafa hins vegar neitað því að um fólksflótta úr landinu sé að ræða, heldur séu þetta Sýrlendingar að heimsækja ættingja sína sem eigi heima hinum megin við landamærin. Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að yfirvöld í Sýrlandi væru að reyna að berja almenning til hlýðni. Mótmæli í landinu hafa nú staðið í ellefu vikur. Pillay segir að 1.100 karlar, konur og börn hafi látist síðan mótmælin hófust. Hún kvað morð á þrettán ára gömlum dreng, sem virtist hafa verið pyntaður og svo skotinn, sýna að stefna stjórnvalda við að bæla niður mótmælin með öllum ráðum væri siðlaus og ólögleg. - þeb
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira