Enski boltinn

Liverpool í viðræðum við Fulham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Svo gæti farið að Paul Konchesky snúi aftur til Fulham áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn.

Roy Hodgson tók Konchesky með sér til Liverpool í sumar en Hodgson var stjóri Fulham á síðasta tímabili.

En nú er Liverpool búið að reka Hodgson og Kenny Dalglish hefur tekið við hans starfi. Síðan þá hefur Konchesky ekkert fengið að spila.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Fulham eigi nú í viðræðum við Liverpool um að fá Konchesky lánaðan til loka leiktíðarinnar.

Konchesky spilaði tvo leiki með Fulham í ensku úrvalsdeildinni í ágúst áður en hann var seldur til Liverpool og því má hann ekki spila með öðru liði fyrr en á næsta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×