West Ham fallið - Tottenham vann Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 00:01 Nordic Photos / Getty Images
West Ham féll í dag úr ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið tapaði fyrir Wigan á útivelli, 3-2. Tottenham er komið upp í fimmta sæti deildarinnar eftir sigur á Liverpool, 2-0. West Ham komst í 2-0 forystu í leiknum gegn Wigan með tveimur mörkum frá Demba Ba í fyrri hálfleik. Charles N'Zogbia minnkaði muninn á 57. mínútu og varamaðurinn Conor Sammon jafnaði svo leikinn fyrir Wigan ellefu mínútum síðar. N'Zogbia tryggði svo Wigan mikilvæg þrjú stig í fallbaráttunni með sigurmarki leiksins á 94. minútu. West Ham er á botninum með 33 stig þegar ein umferð er eftir en Wigan er nú með 39 stig, rétt eins og Birmingham, og Blackpool. Blackburn og Wolves eru svo með 40 stig. Liverpool verður líklega ekki með í Evrópudeildinni á næstu leiktíð eftir að liðið tapaði fyrir Tottenham á heimavelli. Rafael van der Vaart kom Tottenham yfir með laglegu skoti snemma leiks og Luka Modric tryggði liðinu svo sigur með marki úr umdeildri vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik. Arsenal tapaði heldur óvænt fyrir Aston Villa á heimavelli, 2-1, og er því Chelsea öruggt með annað sætið í deildinni. City á nú möguleika að hirða þriðja sætið af Arsenal. Darren Bent skoraði bæði mörk Aston Villa með stuttu millibili snemma í leiknum. Arsenal hefur aðeins unnið tvo leiki af síðustu tíu deildarleikjum sínum og ljóst að raddirnar um að liðið verði tekið í gegn í sumar eru orðnar ansi háværar. Þá vann Fulham góðan útisigur á Birmingham, 2-0, en síðarnefnda liðið er í mikilli fallhættu sem fyrr segir. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í síðari hálfleik og var nálægt því að skora.Úrslitin:Arsenal - Aston Villa 1-2 0-1 Darren Bent (10.) 0-2 Darren Bent (14.) 1-2 Robin van Persie (88.)Birmingham - Fulham 0-2 0-1 Brede Hangeland (4.) 0-2 Brede Hangeland (48.).Liverpool - Tottenham 0-2 0-1 Rafael van der Vaart (8.) 0-2 Luka Modric (55.).Wigan - West Ham 3-2 0-1 Demba Ba (11.) 0-2 Demba Ba (25.) 1-2 Charles N'Zogbia (56.) 2-2 Conor Sammon (67.) 3-2 Charles N'Zogbia (93.)
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira