Ferguson: Snerist ekki um að taka fram úr Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 11:30 Sir Alex fagnar titlinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að það mikilvægasta við að vinna nítjánda meistaratitilinn að félagið sé þá sigursælasta félag Englands. United varð í gær meistari í nítjánda sinn eftir 1-1 jafntefli við Blackburn á útivelli. „United á að vera besta félagið á Englandi og vonandi verður það þannig í langan tíma enn," sagði Ferguson en United tók með titlinum í gær fram úr Liverpool sem hafði lengi verið handhafi flestra titla frá upphafi. „Þetta snýst ekki um að taka fram úr Liverpool. Ég held að ég hafi aldrei sagt að ég hafi viljað koma Liverpool af sínum stalli." „Það er mikilvægara að Manchester United sé besta félag Englands þegar kemur að fjölda meistaratitla. Við höfum unnið enska bikarinn oftast, orðið Evrópumeistari og heimsmeistari félagsliða." „Mér finnst reyndar að við ættum að eiga fleiri Evrópumeistaratitla en við eigum möguleika á að fjölga þeim," bætti Ferguson við en United á þrjá slíka - Liverpool fimm. United getur bætt þeim fjórða í safnið þegar að liðið mætir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley þann 28. maí. Ferguson gaf sér lítinn tíma til að fagna titlinum í gær - hann er strax byrjaður að líta til framtíðar. „Það er skyldan sem fylgir því að stýra Manchester United. Næsta áskorun er alltaf handan við næsta horn. Ég mun engu breyta og ætla ekki að slaka á vegna þess að við unnum titilinn í dag. Vonandi verðum við betri á næsta tímabili." Ferguson segir það óskandi að félagið bæti við sig 1-2 leikmönnum í sumar. „Það eru nokkrir ungir leikmenn á leiðinni aftur til félagsins eins og Welbeck, Cleverly og Diouf. Við viljum verða betra enda tel ég að metnaður félagsins hafi ekkert breyast."
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira