Chelsea-liðið að komast í gamla formið - vann 4-0 sigur á Bolton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2011 21:57
Chelsea vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið sótti þrjú stig til Bolton og vann þar góðan 4-0 sigur. Þetta var aðeins annað tap Bolton-liðsins á Reebok-vellinum á tímabilinu. Chelsea er nú fjórum stigum á eftir Manchester City (3. sæti) en liðið vantar enn sjö stig til þess að ná toppliði Manchester United sem á auk þess leik inni. Chelsea hefur unnið þrjá síðustu leiki sína í deild og bikar með markatölunni 13-0 og það er óhætt að segja að þeir séu að komast í gamla góða formið. Það er aðra sögu að segja af Bolton-mönnum sem þarna töpuðu öðrum leiknum í röð og þeim fjórða í síðustu fimm leikjum. Liðið hefur aðeins náð í eitt stig af síðustu fimmtán mögulegum og er komið alla leið niður i 10. sæti deildarinnar. Didier Drogba skoraði fyrsta markið á 11. mínútu með þrumuskoti af um 30 metra færi. eftir að Grétar Rafn Steinsson hafði misst frá sér boltann. Markið hjá Drogba var stórglæsilegt. Florent Malouda kom Chelsea í 2-0 fjórum mínútum fyrir hálfleik þegar hann fylgdi á eftir eigin skoti eftir að fyrra skotið hans fór í varnarmanninnn Gary Cahill. Nicolas Anelka gerði síðan nánast út um leikinn þegar hann kom Chelsea í 3-0 á 56. mínútu eftir sendingu Mickael Essien og undirbúning Florent Malouda. Brasilíumaðurinn Ramires skoraði síðan fjórða markið á 74. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Nicolas Anelka sem fór í varnarmann. Ramires opnaði þar með loksins markareikning sinn í enska boltanum í sínum 24. leik með Chelsea-liðinu. Grétar Rafn Steinsson snéri aftur í lið Bolton eftir meiðsli og lék allan leikinn í hægri bakverðinum.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn