Enski boltinn

Obafemi Martins lánaður til Birmingham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rússneska félagið Rubin Kazan hefur greint frá því að Nígeríumaðurinn Obafemi Martins hafi verið lánaður til enska úrvalsdeildarfélagsins Birmingham til loka leiktíðarinnar.

Martins er 26 ára gamall og var keyptur til Rubin Kazan í sumar fyrir sautján milljónir punda frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Wolfsburg. Hann hefur áður leikið með Inter Milan og Newcastle.

„Hann er nýorðinn pabbi og bað um að fá að fara til Englands svo hann gæti verið meira með fjölskyldu sinni," sagði Kurban Berdyev, stjóri Rubin Kazan.

Enskir fjölmiðlar fullyrða að Martins hafi einnig staðið til boða að fara til West Brom en að hann hafi hafnað því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×