Skúli Jón: Ætla ekki að koma við leikmenn Þórs inni í teig Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. ágúst 2011 13:30
Skúli Jón Friðgeirsson leikmaður KR segir bikarúrslitaleikinn í fyrra hafa verið matröð. Skúli, sem fékk dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum, ætlar ekki að koma við leikmenn Þórs inni í vítateig KR. „Við erum klárir í slaginn og tilbúnir í hörkuleik. Vonum að þetta fari vel," segir Skúli sem man vel eftir leiknum frá því í fyrra þótt hann vilji gleyma honum sem fyrst. „Leikurinn í fyrra var matröð á allan hátt. Fór til fjandans. Við ætlum alls ekki að endurtaka þann leik í ár. Vonandi gleymum við þeim leik sem fyrst, með sigri á laugardaginn," FH vann bikarinn í fyrra eftir 4-0 sigur á KR í úrslitaleiknum. KR-ingar fengu dæmdar á sig tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik, sú fyrri eftir brot Skúla Jóns á Atla Guðnasyni. „Ég mun sjálfur passa mig vel á því að koma ekki við menn inni í teig. Vonandi fáum við ekki dæmdar á okkur tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik. Ég hef enga trú á því að þessi leikur endurtaki sig. Ef það gerist að þetta stefni í svipaða átt þá erum við betur undirbúnir en í fyrra," segir Skúli Jón. Fjarvera Guðmundar Reynis Gunnarssonar og Óskars Arnar Haukssonar veikir KR-liðið. Örvfætta tvíeykið hefur farið á kostum á vinstri kantinum í sumar. Guðmundur Reynir er í leikbanni en Óskar Örn frá út leiktíðina vegna meiðsla. „Þeir eru búnir að vera frábærir og erfitt að fylla í þeirra skörð. En við teljum okkur eiga nægan mannskap á bekknum og mikið talað um, sérstaklega í fjölmiðlum, að við séum með breiðan og góðan hóp. Það kemur vonandi í ljós á laugardaginn." Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra verður heiðursgestur á leiknum. „Ég held að það skipti ekki öllu máli. Ég mun allavegna taka í höndina á honum og vona að hann veiti mér bikarinn í leikslok. Þá verð ég allavegna ánægður með hann," sagði Skúli Jón.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Náðu í börn látins liðsfélaga svo þau gætu verið með á gullmyndinni Sport Jürgen Klopp um Bodö: „Gæti ekki verið meiri klikkun“ Fótbolti Sjáðu Sesko stinga alla af og tryggja Man. Utd þrjú stig Enski boltinn Notuðu ranga mynd af nýlátinni íþróttastjörnu Sport „Ég er himinlifandi með úrslitin og baráttuandann“ Enski boltinn Ofbeldisfulli pabbinn fær að mæta á mót en synirnir verða ekki þar Sport Messi braut ekki reglur þegar hann virtist elta dómarana eftir leik Fótbolti Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Enski boltinn „Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn Höfnuðu boði Trumps eftir grín hans í karlaklefanum Sport Fleiri fréttir Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sverrir frá Eyjum til FH „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið FH hafði betur gegn Stjörnunni Breiðablik kaupir Ívar af KA Blikar að landa Ívari KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt KSÍ dregur úr verðhækkunum KR lenti tveimur undir en er enn án taps Keflavík og HK á sigurbraut Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ „Þetta er allt annað dæmi“ Sjá meira
„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn
„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn