Fabregas: Hvað er búið að borga ykkur mikið? Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 3. febrúar 2011 10:00 Cesc Fabregas leikmaður Arsenal er enn fréttaefni í enskum fjölmiðlum eftir 2-1 sigur liðsins gegn Everton í fyrrakvöld. Hér er hann að ræða við dómara leiksins eftir fyrsta markið. Nordic Photos/Getty Images
Cesc Fabregas leikmaður Arsenal er enn fréttaefni í enskum fjölmiðlum eftir 2-1 sigur liðsins gegn Everton í fyrrakvöld en Spánverjinn er sakaður um að hafa látið dómara leiksins fá það óþvegið þegar leikmenn gengu til búningsklefa í hálfleik. „Hvað er búið að borga ykkur mikið," á Fabregas að hafa sagt við dómarana samkvæmt heimildum Daily Mail. David Moyes knattspyrnustjóri Everton hefur neitað að segja hvað Fabregas sagði við dómarana en Moyes er sannfærður um að leikmaðurinn hefði verið sendur af leikvelli ef atvikið hefði átt sér stað úti á vellinum. Fyrsta mark leiksins sem Louis Saha skoraði var umdeilt - og líklega rangstaða þar á ferðinni, en markið var dæmt gott og gilt. Lee Mason dómari leiksins ætlar ekki að fara með málið lengra og aðeins forsvarsmenn Everton geta haldið málinu á floti ef þeir senda inn formlega kvörtun til enska knattspyrnusambandsins. Fabregas segir að hann beri virðingu fyrir öllum dómurum og það sé erfitt að vera dómari. „Ég var reiður og 60.000 áhorfendur voru það einnig. Leikmenn beggja liða sögðu ýmislegt þegar við fórum af leikvellinum," bætti Spánverjinn við.
Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira