Scholes: Ég var ekki grófur leikmaður Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júní 2011 23:30 Mike Dean sýnir Scholes rautt spjald fyrir tæklinguna á Zabaleta Mynd/Getty Images
Knattspyrnumaðurinn Paul Scholes sem nýverið lagði skóna á hilluna segist ekki hafa verið grófur leikmaður. Hann segir ljótar tæklingar sínar hafa verið slæmri tímasetningu að kenna. Scholes hlaut 90 gul spjöld í ensku úrvalsdeildinni og situr í þriðja sæti yfir leikmenn sem hafa verið áminntir oftast. Hann segir orðspor sitt sem grófan knattspyrnumann ekki sanngjarnt. „Ég hef bara verið óheppinn. Ég hef aldrei ætlað mér að meiða neinn. Tæklingin á Zabaleta (í undanúrslitum FA bikarins) var ekki viljandi. Slæmri tímasetningu var um að kenna," sagði Scholes við breska fjölmiðla. „Ég myndi aldrei meiða neinn vísvitandi. Enginn hefur þurft að yfirgefa völlinn eftir tæklingu frá mér. Ég hef aldrei verið sóðalegur leikmaður," bætti Scholes við. Tæklingar Scholes voru ljóður á leikstíl kappans sem á stórkostlegan feril að baki. Hann hefur fengið mikið hrós í gegnum tíðina frá fremstu knattspyrnumönnum heimsins. Skemmst er að minnast úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í maí þegar skærustu stjörnur Barcelona vildu allar skiptast á treyjum við kappann. Þar varð Andres Iniesta hlutskarpastur. Scholes verður áfram á launaskrá hjá Manchester United en hann verður í þjálfarateymi félagsins.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira