Umfjöllun: Ótrúleg dramatík í lokin þegar Fylkir vann Víking Ari Erlingsson skrifar 11. september 2011 16:15
Ásgeir Örn Arnþórsson tryggði Fylki 2-1 sigur á Víkingi með síðustu spyrnu leiksins þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Staða Víkinga versnaði því enn en þeir eru einir á botni Pepsi-deildarinnar níu stigum frá öruggu sæti. Víkingar hafa þar með leikið sjö leiki undir stjórn Bjarnólfs Lárussonar án þess að ná að vinna leik en Víkingsliðið hefur aðeins náð í tvö stig síðan að Bjarnfólfur tók við af Andra Marteinssyni í júlí. Fyrirfram mátti áætla að leikurinn myndi verða jafn og spennandi. Jafn og spennandi var hann en ekki voru tilþrifin mikil. Leikurinn var drepleiðinlegur í 80 mínútur en þegar 10 mínútur lifðu leiks var sem nýr leikur hæfist og leikmenn liðanna settu í sóknargírinn. Þrjú mörk voru skoruð á lokakaflanum og þar af skoraði Ásgeir Örn Arnþórsson miðjumaður Fylkis sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins. Lokatölur 2-1 fyrir Fylki. Eins og áður segir var leikurinn jafn lengst af en Víkingar fengu þó betri færi. Björgólfur Takefusa fékk það besta þegar hann lét gamla Þróttarafélaga sinn Fjalar Þorgeirsson verja frá sér vítaspyrnu. Eins fékk Sigurður Egill Lárusson dauðafæri er hann slapp einn í gegn en Fjalar varði slakt skot hans. Seinni hálfleikur var líkt og sá fyrri jafn. Leikur liðanna einkenndist af ómarkvissum sóknum og stífum varnaleik. Það var ekki fyrr en leikklukkan sýndi 82 mínútur að líf færðist í leikinn. Þá skoraði Viktor Jónsson þá nýkominn inn sem varamaður. Viktor skoraði með sinni fyrstu snertingu eftir stungusendingu frá Sigurði Lárussyni. Heimamenn í Fylki voru þó ekki lengi að svara fyrir sig. Hinn 17 ára Hjörtur Hermannsson jafnaði leikinn á 86 mínútu þegar hann fylgdi eftir stangarskoti frá Tómasi Þorsteinssyni. Við mark Hjartar tóku þeir appelsínugulu öll völd. Eftir þó nokkra pressu skoraði Ásgeir Örn Arnþórsson mark á 93 mínútu innan úr vítateig. Ásgeir fékk boltann frá Alberti Ingasyni, tók boltann á brjóstið og hamraði knöttinn í netið. Víkingar tóku miðju og því næst flautaði Þóroddur Hjaltalín dómari til leiksloka. Fylkismenn fóru því með sigur af hólmi í hádramatískum leik. Það má svo sannarlega vorkenna Víkingum eftir leikinn. Þeir voru engu síðri í leiknum og líklegast hefði sanngjarnasta niðurstaðan verið jafntefli. Því miður fyrir þá nýttu þeir ekki færin sín og Fylkismenn refsuðu þeim illilega undir lok leiks. Bestur í liði Víkinga var Colin Marshall á miðjunni. Í liði Fylkis voru markaskorarnir Ásgeir Örn og Hjörtur frískir auk þess sem Fjalar varði vel á mikilvægum augnablikum. Staða Víkinga eftir úrslit kvöldsins er virkilega slæm og það er greinilegt lánleysi ríkjandi í Víkinni. Þeir voru vel inni í þessum leik en töpuðu leiknum á eigin klaufaskap í lokin sem er dæmigert fyrir lið í fallbaráttu. Fylkismenn þurftu ekki að sýna neinn glansleik til þess að sigra en þeir geta þó glatt sig við það að nægur er efniviðurinn í Árbænum. Lið Fylkis hefur tekið gríðarlegum breytingum í sumar. Þeir hafa misst tvo menn út í atvinnumennsku auk þess sem mikil meiðsli hafa herjað á þá. Ungu strákarnir í leikmannahóp Fylkis sýndu í dag að þeir geta vel spilað flottan fótbolta og það er því vel hægt að byggja upp sterkt lið í Árbænum á næstunni.Fylkir – Víkingur 2-1 0-1 Viktor Jónsson (82.) 1-1 Hjörtur Hermannsson (86.) 2-1 Ásgeir Örn Arnþórsson (93.) Fylkisvöllur. Áhorfendur: 865 Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. (8)Tölfræðin: Skot (á mark): 10–8 (3-2) Varin skot: Fjalar 1 – Magnús 2 Hornspyrnur: 6–1 Aukaspyrnur fengnar: 15–10 Rangstöður: 2–1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Sjá meira