Newcastle steinlá fyrir Stevenage og er úr leik í bikarnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2011 22:02 Leikmenn og stuðningsmenn Stevenage fagna í dag. Nordic Photos / Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle er úr leik í ensku bikarkeppninni eftir að hafa tapað fyrir D-deildarliðinu Stevenage heldur óvænt í dag, 3-1. Stevenage komst yfir á 50. mínútu er skot Stacy Long breytti um stefnu á Mike Williamson, varnarmanni Newcastle. Fimm mínútum síðar bætti Michael Bostwick við öðru marki fyrir Stevenage. Til að bæta gráu á svart fyrir Newcastle fékk varamaðurinn Cheik Tiote beint rautt spjald fyrir ljóta tæklingu. Joey Barton náði að minnka muninn fyrir Newcastle með marki af 30 metra færi í uppbótartíma en það gafst samt sem áður tími fyrir þriðja mark Stevenage sem Peter Winn skoraði. Stevenage er sem stendur í þrettánda sæti ensku B-deildarinnar en þessi lið mættust einnig í bikarnum fyrir þrettán árum síðan. Þá hafði Newcastle betur en í dag eru alls 73 lið á milli þeirra í ensku deildakeppninni. Þetta er líklega versta tap Newcastle í ensku bikarkeppninni síðan að liðið tapaði fyrir Hereford árið 1972. Graham Westley, stjóri Stevenage, sagði eftir leik að hann hefði sagt sínum mönnum fyrir leikinn að vinna hann 5-0. Það tókst að vísu ekki en niðurstaðan engu að síður glæsilegur sigur. „Við einbeittum okkur að því fyrir leik hvering við gætum unnið 5-0 sigur. Við áætluðum að þó svo að okkur myndi ekki takast nema 20 prósent af því sem við ætluðum okkur myndi það samt duga til sigurs." „Okkar leikáætlum miðaði við að skora fimm mörk. Það tókst ekki en þrjú mörk er ágætis dagsverk."
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Sjá meira